Sunday, 31 August 2008

Vinna

Já kæru landar, þá er komið að því.. þótt ótrulegt megi virðast að þá er ég kominn með vinnu!! Kanski ekki alveg þar sem maður hefði helst viljað, landafræðilega séð, en vinna engu að síður og virkilega spennandi vinna í þokkabót. Ég er semsagt á leiðinni til Sønderborgar aftur og þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar að þá held ég það verði bara ágætt að koma aftur:) Ég byrja semsagt seinnipart september, þannig að það er rétt að farað lesa bækurnar aftur og ryfja upp hvað maður var aftur að læra þarna í skólanum...

Allavega, nóg um mig. Vona að allir hafi það virkilega gott! og ég sé ykkur fljótlega í borginni litlu..

14 comments:

Anonymous said...

INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ VINNUNA!!! Við hlökkum að sjálfsögðu til að fá þig hingað til okkar aftur. Gangi þér vel í upprifjuninni og svo bara sjáumst við bráðlega.
Kv. Begga

Anonymous said...

Til hamingju með vinnuna. Þú ert semsagt komin á upphafsreit.

Kv. VIlborg

Gauti said...

Hvað segir þetta um Sönderborg .. þegar búið er að prófa Sydney og Ríó og Vegas ofl. og samt kemur hann aftur !

.. en staðurinn er auðvitað aldrei betri/verri en fólkið sem býr þar ;)

Unknown said...

Til hamingju með vinnuna þá er bara að standa sig og koma í heimsókn ávallt velkominn vinur
Stefanía

Anonymous said...

Ja hérna hér....en góðar fréttir minn kæri. Hlakka til að hitta þig....já og til hamingju.
Hafdís

Anonymous said...

Til hamingju með vinnuna og til hamingju með afmælið.
Verst að hafa þig ekki með í fjölskyldugleðinni um helgina.
Kveðjur frá Önnu og Hafstein

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið í gær. Ég veit að ég er degi á eftir enn það hefur bara verið svo mikið að gera að ég gleymdi mér.

Kv. Vilborg

Anonymous said...

Blessaður og til hamingju með vinnuna. Hvar ertu að fara að byrja og hvenær?

kveðja frá Reykjavík
Nanna

Anonymous said...

Frábært að heyra! Við bíðum öll auðvitað spennt eftir að hitta þig reynslunni ríkari. Hlakka til að heyra meira um nýju vinnuna.

Kv,
Dísa

Anonymous said...

tja herna held það hafi dottið ein bíb úr mér, nohnoh þú aftur i sönderborg, :) og dótið þitt nýkomið á klakann :) en fínt að vita af góðum til að drekka með sér þegar maður mætir næst :) já og til hamingju með vinnuna
knus knus Dagga

Unknown said...

Ræfill (já, ég kíki stundum hérna ennþá)

Anonymous said...

Já þetta er aldeilis frábært hjá þér. Það er eitthvað þarna í Sönder ? allavega er frábært fólk þar. Veit ekki með skemmtanalífið ;) allavega þá bara gangi þér vel vinur. Við flygjumst með.
kv. Karen

Anonymous said...

Er ekki komin tími á nýja færslu????

Kv. Vilborg

Anonymous said...

Ég fer að halda að þú sér ekki lengur á lífi.
Kv
VL