Sunday, 31 August 2008

Vinna

Já kæru landar, þá er komið að því.. þótt ótrulegt megi virðast að þá er ég kominn með vinnu!! Kanski ekki alveg þar sem maður hefði helst viljað, landafræðilega séð, en vinna engu að síður og virkilega spennandi vinna í þokkabót. Ég er semsagt á leiðinni til Sønderborgar aftur og þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar að þá held ég það verði bara ágætt að koma aftur:) Ég byrja semsagt seinnipart september, þannig að það er rétt að farað lesa bækurnar aftur og ryfja upp hvað maður var aftur að læra þarna í skólanum...

Allavega, nóg um mig. Vona að allir hafi það virkilega gott! og ég sé ykkur fljótlega í borginni litlu..

Thursday, 7 August 2008

Jæja, þá er ég kominn aftur til London eftir USA ferðina. Hef ekki komið þangað áður svo mér fannst helvíti gaman að koma þangað og sjá af hverju heiminum er stjórnað í dag. Ég verð að gefa þeim það að þeir hafa sennilega bestu og fljótlegustu flugvelli heimsins og ekki tók ég eftir allri þessari öriggisgæslu sem svo mikið er alltaf talað um. Ég var meiraðsegja fljótari í gegnum öriggisgæsluna og passport kontrollið en bandarísku ríkisborgararnir.. Það er líka snilld hvað allt er ódýrt þarna, ég verslaði mér einhvern slatta af fötum og eitt stikki fartölvu svona í tilefni dagsins.

Núna er ég þó semsagt kominn aftur til London, í vesenið og eilífu leitina að atvinnu...

Thursday, 31 July 2008

USA

Saelir allir. 'Eg hef satt best ad segja ekki hugmynd um hvad er ad gerast i atvinnumalum minum. 'Eg er ad saekja um a fullu en eg hef ekki fengid nein jakvaed svor entha. thad eru komnir hvad... 4 manudir og eg er ordinn vel treyttur a thessu djofulsins hangsi. Thess vegna akvad eg ad skella mer til USA i nokkrar vikur (Pabbi, sorry ad eg hef ekki latid thig vita entha). I sidustu viku var eg i Las Vegas i eina viku, borg hlaturs og synda, thid getid ymindad ykkur hvernig thad var. Nuna get eg horft a allar thessar Las Vegas myndir og sagt "been there" :) Nuna er eg staddur i Atlanta og verd fram a laugardag, thegar eg flyg aftur til London. 'Eg for a hafnaboltaleik i fyrrakvold. Merkilegt sport og reyndar mun meira spennandi nuna thegar madur hefur farid a leik og veit uta hvad thetta allt saman gengur. Allavega, onnur heimsalfa i vasann, bara 2eftir.. thad kemur ad theim seinna, svona eftir ad eg fae vinnu, assuming ad eg fai einhverntima vinnu.

Endilega latid heyra i ykkur, ef einhver les thetta entha. Sakna ykkar allra
later

Thursday, 3 July 2008

Hey

Ekki örvænta fólk, ég er enþá á lifi!!

Ég er bara að reyna að finna útúr hlutunum, svo að þangað til verð ég sæmilega hljóður:)

Vona að allir hafi það sem allra best, og ykkur er velkomið að senda línu á mig hvenær sem er;)

later folks
I

Friday, 16 May 2008

Mitt líf

Leitað vinnu í London
Djamma í London
Kíkja á Ísland í viku og leiðast
Leika sér í London
Kíkja aftur á ísland og leggjast undir hnífinn
Láta sér leiðast á Íslandi
Fer svo út aftur eftir nokkrar vikur

Sjáið bara, strax kominn í rútínu og ég er ekki einu sinni kominn með vinnu til að hafa rútínu í... Afrek

Thursday, 17 April 2008

FUCK!!!

Hversu erfitt getur thad verid ad finna eitt fucking jobb??

Thursday, 10 April 2008

Það veit ég ekkert!!

...er að vinna í málunum.