Thursday, 7 August 2008

Jæja, þá er ég kominn aftur til London eftir USA ferðina. Hef ekki komið þangað áður svo mér fannst helvíti gaman að koma þangað og sjá af hverju heiminum er stjórnað í dag. Ég verð að gefa þeim það að þeir hafa sennilega bestu og fljótlegustu flugvelli heimsins og ekki tók ég eftir allri þessari öriggisgæslu sem svo mikið er alltaf talað um. Ég var meiraðsegja fljótari í gegnum öriggisgæsluna og passport kontrollið en bandarísku ríkisborgararnir.. Það er líka snilld hvað allt er ódýrt þarna, ég verslaði mér einhvern slatta af fötum og eitt stikki fartölvu svona í tilefni dagsins.

Núna er ég þó semsagt kominn aftur til London, í vesenið og eilífu leitina að atvinnu...

7 comments:

Anonymous said...

hmm ...hef ekkert eða of mikið að segja þér.
Hafðu það gott og farðu svo að lýta heimsókn.
Ég skal búa um þig í kjallaranum.
Snorri

Silja said...

London Smondon sko!!!! Koddu bara hingað svo við getum knúsað þig.... hehehe ;) Þín er sárt saknað... Og ég tala ekki bara fyrir mig... ;) Væri allavega gaman að fá þig í smá´"kík"... xoxoxoxoxo

Anonymous said...

Smá comment og kveðja frá okkur. Þú færð vinnu á endanum hvar sem það verður. Verra með þolinmæðina sem er ekki keypt á hverju horni.
kv. Karen og co.

Begga Sønderborgari said...

Mikið var nú gaman að fá aðeins að sjá framan í þig í fyrrakvöld. Við værum nú meira en til í að sjá aðeins meira af þér áður en þú ferð til London aftur, en við vitum að það eru margir fleiri sem vilja fá að sjá þig líka.
Nú er bara að bíða og sjá hvar þú ferð að vinna, "hérna" eða í London.
Kv. Begga

Anonymous said...

Allt gott að frétta af okkur enn þér. það er kominn tími á fréttir.
Vilborg

Stefania said...

ertu í DK núna???

Ingolfur said...

nei eg er i entha i london, en kem a sunndudagnn til dk;)