Thursday, 21 February 2008

Hægðir

Hægðir eru merkilegur hlutur, svona sérstaklega hérna undanfarnar vikur. Held að kaffið sé að kikka verulega inn, já og kanski eithvað af þessum dodgy mat sem maður hefur verið að éta á mörkuðunum í gegnum þetta blessaða ferðalag hjá manni. þetta er komið uppí að maður sest á dolluna nokkrum sinnum á dag til að hafa undan. Fyrsta session er kanski ekki alslæmt, þið kannist við þetta bara þægilega þykkur köggull sem rennur þægilega út endaþarminn án þess að vera of blautur eða of þurr, bara venjulegur, tekur ekkert allt of mikinn pappír heldur. Eftir nokkra kaffibolla er svo kominn tími á round 2. Þá er allt farið að mýkjast aðeins og jafnvel komið í nokkra köggla, eða kanski frekar komið í nokkrar svona mjúkhrúgur sem detta þægilega niður. Vandamálið hérna er magnið af pappír sem þarf að nota til að þurka rassalinginn. Þegar hérna er komið við sögu er gamli rassalingur farinn að þorna soldið og kanski ekki allt of þægilegt að þrífa, og get ég sagt ykkur að manni er ekki farið að hlakka til session 3. Þegar session 3 kemur að þá er maður nú búinn að fá sér smá snæðing, nokkra bjóra og að sjálfsögðu fullt meira af kaffi. Hérna eru hlutirnir farnir að leka frekar þægilega út og er ég svosem ekkert að kvarta yfir þeim part af málinu. Vandamálið er þegar á að þurka vesenið, núna erum við að tala um heilu og hálfu rúllurnar sem að gerir það líka að verku að rassinn verður verulega þurr og allt er orðið frekar óþægilegt. Það skuggalegasta við session 3 er hinsvegar að maður er að skeina sig ofaní ruslafötu við hliðina klósettinu.. Þið getið bara ýmindað ykkur.. sexy dæmi... Þrátt fyrir allt þetta að þá á góðum degi er kominn tími á session 4, sem ég get lofað ykkur að er yfirleitt ekkert betra en session 3 þar sem þú þarft aukalega að hafa opna ruslafötu með lyktinni og vesenini frá session 3 við hliðiná þér.

Hvað sem öllu líður að á langaði mér nú bara svona að deila þessum hlutum með ykkur og segja sem boðskap "travelling is a bitch".

Næst á Kúbu!!


Bogotá, la ciudad del otoño eternal. Bogotá, borg hins eilífa hausts. Það á skuggalega vel við, rétt sést í bláan himin inn á milli þykkra, grárra (nánast svartra) skýjanna sem hella úr skálum reiði sinnar reglulega. Kalt og grátt og blautt. Maður þakkar eiginlega fyrir lopahúfuna og NorthFace jakkann.

Var frábært að sjá Machu Picchu, hreint ótrúlegur staður. Skoðuðum líka Valle Sagrado, semsagt meira af gömlum steinum uppi í fjöllum, látum fylgja með myndir hér. Varðandi kommentinn úr Miðtúninu hér fyrir neðan; Aguas Calientes er einhver viðbjóðslegasti staður sem ég hef komið til held ég. Allt á fjór-fimmföldu verði og allir stökkva á þig eins og hrægammar um leið og þú kemur í 10metra fjarlægð. Sölumennskan og betlið var nógu slæmt fyrir, en Aguas Calientes sló það allt saman út. Þurfti að kaupa mér flugnaspaða til að berja þetta helvíti af mér!

Bíðum annars bara spenntir eftir að komast til Kúbu, náum víst síðasta degi Kastró við völd þar sem þingið kýs nýjan forseta á sunnudag, þetta rétt slapp! Komnir með gistingu fyrstu sex næturnar í svokölluðu casa particular, nokkurskonar heimagisting, og ætlum svo að kíkja eitthvað út fyrir Habana í einhverja daga. Og svo þarf Þórir auðvitað að fá nokkra daga á ströndinni undir lokin, þrátt fyrir hávær mótmæli litla örverpisins.

Allavega, tími á meira kaffi, látum í okkur heyra frá Kastróland.

p.s. LOKSINS LOKSINS! komnar nokkrar myndir á linkinn við hliðina (Some pictures), misgóðar reyndar, voru valdar blindandi og af handahófi. Vilborg, litla viðrinið lofaði þér og hér eru þær!

Tuesday, 19 February 2008

Ætli það sé ekki kominn tími á nýtt blogg.. ekki að það virðist vera margir sem lesi þessa vitleysu hjá manni...

Perú var alls ekki slæm, get ekki sagt annað en að mér hafi líkað mun betur við Perú en nokkurntímann Brasilíu. Perú virðist vera mun fátækari og soldið föst í gamla tímanum, en á sama tíma að reyna eins og það getur að komast inní nútíðina. Það sem ég meina er að útá landi sér maður gamlar kellur í litríkum veffatnaði að selja vefnað á hverju götuhorni (ef kalla má götuhorn) og byggingarnar virkilega frumstæðar, í öðrum orðum alger "slum", en svo allt í einu, inní miðju slumminu sér maður byggingu með glæjýjar rúður eins og maður myndi búast við í evrópu.. nokkuð merkileg sjón.

Machupicchu var snilld!! Get ekki sagt annað en að þetta sé frekar impressive samansafn af steinum uppá fjalli in the middle of nowhere.. Það er eigilega lítið hægt að segja um það, þarf eigilega meira að sjá... en það er allavega hægt að krossa þetta af listanum..

Þessa stundina erum við bræður í Bogóta (Colombíu) í góðu yfirlæti drekkandi expresso kaffi eins og okkur væri borgað fyrir það. Ætli maður hendi ekki nokkrum baunabokum í pokann áður en maður yfirgefur svæðið. Bogóta er nokkuð "kúl" bær en verður þó að viðurkennast að þetta er eini bærinn sem maður væri til í að hafa augu í hnakkanum, það er fullt af dodgy fólki hérna og svosem nóg af árásum og ránum hafa verið hérna undanfarið, ekki að við höfum séð nokkuð af því ennþá:(

Laugardagur til lukku, eða svo er sagt.. Næsta laugardag er ferðinni svo haldið til Kúbu, það verður reyndar að viðurkennast að það er hálffúlt að Castro hafi sagt af sér 4 dögum áður en maður kemst þangað.. helvítis helvíti.. en hey hann gæti alltaf dáið meðan maður er þarna og jafnvel komist í útförina (það má alltaf vona).

Hvað um það, það fer að líða að lokunum af þessari vitleysu hjá manni.. köllum það mánuð eða tvo.

Ef einhver les þessa vitleysu hjá manni að þá er aldrei að vita nema maður hendi inn eins og einu eða tveimur bloggum á Kúbu. Þar til næst, svona ef við gerum ráð fyrir að lifa Colombiu af...

litli og stóri bros

Saturday, 9 February 2008

Karnaval

Hmm, tratt fyrir frekar draemar undirtektir vid sidustu faerslu munum vid nu samt leyfa ykkur ad heyra orlitid meira af aevintyrum vorum sunnan midbaugs.

Karnavali ad sjalfsogdu lokid eins og altjod veit. Tad var mikid um dyrdir audvitad og toluvert um rigningu lika. Letum tad ad sjalfsogdu ekki a okkur fa og reyndum ad vera rakari ad innan. Slepptum ekki ur einu kvoldi, tokum eitt a Sambadróme tar sem allar skrudgongurnar fara fram og sambaskolarnir keppa hver vid annan. Vorum ekki med bestu saeti i heimi en stemmningin var bara svo frabaer, allir trallandi og dansandi fram til 6 um morguninn. Annars leitudum vid bara uppi gotuparty, svokollud blocos, a daginn, sem fara fram i mismunandi hverfum nanast allan daginn fram undir morgunn.

Adalpartyid er svo alltaf i Lapahverfinu a nottunni. Rakumst a nokkra lokala tridju nottina sem guide-udu okkur soldid um, sem var audvitad algjor snilld. Sidustu nottina lentum vid svo einhverjum rokna tonleikum, alveg ovart, tar sem spiludu tetta lika fina samba-funk band, lelegasta Creedence Clearwater Revival cover band sem nokkurn tima hefur heyrst i (var svo slaemt tad var ordin algjor snilld) og eitthvad brasiliskt rokkband sem fekk okkur gringoana til hoppa adeins um.

I heildina var tetta algjor snilld, maeli med Karnaval, tott menn hafi verid ordnir ansi lunir eftir a... og borgin OLL farin ad lykta af hlandi vaegast sagt. Semsagt, timi til ad halda afram.

Flugum svo frekar osofnir til Lima, Peru a fimmtudagsmorguninn 7. 1st impression af Lima... ohrein. odyr. havaer. hektisk. allt annar vibe en i Rio. Stoppudum reyndar ekkert, svafum allan fimmtudaginn :p og svo upp i rutu i gaer og stefnan tekin til Cuzco tar sem vid sitjum nuna i trumuvedri. 21tima rutuferd herna uppeftir, komnir i 3500metra haed yfir sjavarmali uppi i Andesfjollunum.

Skodunardagur um borgina a morgun, og svo a manudag 3 daga ferd ad skoda nokkrar gamlar Inkaborgir, og fer tar audvitad fremst i flokki Machu Picchu! Stefnum svo aftur nidur til Lima seinni part naestu viku tar sem vid eigum flug til Bogota 17. feb. Fengum ekki ad yfirgefa Brasiliu nema kaupa hann....

Bidjum ad kvedja i bili, reynum kannski ad henda nokkrum myndum inn seinna i kvold ef taekifaeri gefst.

Braedurnir