Thursday, 21 February 2008



Bogotá, la ciudad del otoño eternal. Bogotá, borg hins eilífa hausts. Það á skuggalega vel við, rétt sést í bláan himin inn á milli þykkra, grárra (nánast svartra) skýjanna sem hella úr skálum reiði sinnar reglulega. Kalt og grátt og blautt. Maður þakkar eiginlega fyrir lopahúfuna og NorthFace jakkann.

Var frábært að sjá Machu Picchu, hreint ótrúlegur staður. Skoðuðum líka Valle Sagrado, semsagt meira af gömlum steinum uppi í fjöllum, látum fylgja með myndir hér. Varðandi kommentinn úr Miðtúninu hér fyrir neðan; Aguas Calientes er einhver viðbjóðslegasti staður sem ég hef komið til held ég. Allt á fjór-fimmföldu verði og allir stökkva á þig eins og hrægammar um leið og þú kemur í 10metra fjarlægð. Sölumennskan og betlið var nógu slæmt fyrir, en Aguas Calientes sló það allt saman út. Þurfti að kaupa mér flugnaspaða til að berja þetta helvíti af mér!

Bíðum annars bara spenntir eftir að komast til Kúbu, náum víst síðasta degi Kastró við völd þar sem þingið kýs nýjan forseta á sunnudag, þetta rétt slapp! Komnir með gistingu fyrstu sex næturnar í svokölluðu casa particular, nokkurskonar heimagisting, og ætlum svo að kíkja eitthvað út fyrir Habana í einhverja daga. Og svo þarf Þórir auðvitað að fá nokkra daga á ströndinni undir lokin, þrátt fyrir hávær mótmæli litla örverpisins.

Allavega, tími á meira kaffi, látum í okkur heyra frá Kastróland.

p.s. LOKSINS LOKSINS! komnar nokkrar myndir á linkinn við hliðina (Some pictures), misgóðar reyndar, voru valdar blindandi og af handahófi. Vilborg, litla viðrinið lofaði þér og hér eru þær!

2 comments:

Anonymous said...

Ó hvað þetta er skemmtilegt... tekur þetta nokkuð enda?
Knús Stefanía

Gauti said...

Mig hefur alltaf langað til að sjá þennan Macho Pizza stað . . bara séðann í þáttum eða á mynd .. merkilegir þessir Inkar . . þeir voru með hraðari tengingu við guðina en við hin.