Hvað er búið að gerast frá því ég kom til Ástralíu?
Það er nú ekki eins og ég sé bara að keyra um heldur hef ég einnig klifið fjöll, björg og hóla: Mt. Warning (ætti að gefa smá hint um fjallið) og Mt. Beerwah (hvað get ég sagt... Skál). Einnig séð skrillion af fossum ásamt þeim hæðsta í Ástralíu (rétt tæpir 300m), ásamt gommu af regnskógum og svo að sjálfsögðu The Great Barrier Reef (Top that!!)... Þar fyrir utan hefur ca. hálfur dagur farið í að hlaupa um bæ nokkurn í leit að startköplum af því að kvennfólk á ekki að keyra...
Af dýralífi landsins hef ég meðal annars séð; kangaroos, bush-turkeys, attacking Dingos (var í raunverulegri hættu), possom, lizards, Platypus, attacking Cassowary (brjálaður fugl á stærð við strút), næstum því Nicole Kidman og Hugh Jackman (í Bowen við upptökur), cows, frogs hopping for their lives on the highway, 1/2 snake (lifandi), blodsucking blóðsugur (búnar að sjúga einhverja lítra burt og the fucking mossies...
Ýmislegt hef ég einnig lagt mér til munns annað en pasta, hrísgrjón og núðlur (bellieve it or not). Þetta land er nefnilega einstaklega gott til að nálgast freska ávexti og grænmeti. Grillað grasker, grillaðar sætar kartöflur bragðast dónalega vel, sérstaklega þegar borið fram með Kangaroo kjöti eða jafnvel Croc... jammmmmííí.. Við reynum líka að lifa af landinu og í þeirri leit höfum við pikkað upp nokkrar kókoshnetur og étið ferskar.
Í heildina litið get ég í fáum orðum sagt þetta: Ég er að upplifa veturinn uppá sitt besta 22-35°C sól og blíða, en ég hef svosem líka séð það sem kallast getur alvöru rigningu. Hinsvegar er ég líka búinn að kynnast, spjalla við, drekka og djamma með ótrúlega hressum Ossys, Kiwis, Írum, þjóðverjum, bretum, frökkum, spánverjum, normönnum svo einhver lönd séu nefnd og skapað mögulega vinnu-kontakta til Írlands. Einnig hef ég reynt að sýna náunganum hvernig á að hjálpa fátækum og þeim sem minna meiga sín og til að sýna þetta í verkum hef ég GEFIÐ hluta af fötunum mínum, bakpoka og fleiri hluti sem ég get í rauninni vel lifað án til fátækra steluþjófa í Brisbane. Þessi samtök eiga undir högg að sækja svo mér fannst rétt að styrkja málefni þeirra.
Eithvað hef ég svosem líka lært af þessu öllu saman, eithvað faglegt sem ég get notað í framtíðinni og get ég nefnt þar nokkra hluti from the top of my head:
Eithvað hef ég svosem líka lært af þessu öllu saman, eithvað faglegt sem ég get notað í framtíðinni og get ég nefnt þar nokkra hluti from the top of my head:
-Vínsmökkun (ekki eins auðvelt og halda mætti)
-Drekka með sönnum Írum (og leggja þá undir borðið)
-Bleyta stóra barma með ca. 10 vatnskönnum í wet t-shirt compotition (Hard work!!)
-spila 2-up (aðeins leyft 1 dag á ári í Ástralíu)
-Brjótast inní Mitsubishi Caravan með matskeið að vopni (Beat that!)
Leiðir okkar Juliu skilja hér og er mitt næsta skref svo að reyna að redda mér fari áfram, þ.e. til Alice Springs og Darwin, ætti að hafast án mikils vesens!
Later folks, hafið það sem allra best af því að ég er on top of my life... Hefur ekki liðið betur í lífinu en akkurat í augnablikinu og hafði ég hugsað mér að njóta hverrar sekúndu as long as it lasts.
P.s. Ég henti inn eithvað af myndum á linkinn hér til hliðar.