Tuesday, 8 May 2007

Queensland

Var að hugsa um að skifta þessu bloggi í tvo parta;
partur 1: Skemtilegi hlutinn sem allir vilja heyra um
partur 2: Leiðindin/vesenið/böggið/asnaskapurinn/pirringurinn og annað vesen

Partur1: Eftir Byron Bay keyrðum við til Kyogle þar sem ættingi Juliu býr og eiddum við þar nóttinni. Daginn eftir fórum við í fjallgöngu uppá skemtilegan eldgamlan volcanu fjallgarð, þar sem útsýnið var naumast sagt frábært. Við sáum meðal annars yfir Mount Warning fjallið, sem er hæðsta fjallið á þessu svæði. Eftir þetta var ferðinni haldið til Nimbin á hið árlega Mardi Grass festival bæjarins. Þarna sér maður mikið af furðulegu fólki í búningum og öðru veseni, ásamt fullt af góðri tónlist (reggie tónlist að sjálfsögðu). Á staðnum var reynt að slá heimsmetið í "most joints rolled at once", skemtileg íþróttagrein sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara... Þegar liðið kveikti svo í var einn reykjarmökkur yfir öllu svæðinu, frekar sérstök sjón..
Næsta dag var svo ákveðið að klífa Mount Warning fjallið og tók það ca. 4 tíma upp og niður aftur(ágætis workout).
Kvöldinu var svo eitt á einhverju bílastæðinu hjá einhverri ströndinni á "the gold coast", beach showers og stemming... fíla það í klessu.
Eftir að hafa keyrt í gegnum surfers paradise og miami komum við til Brisbane þar sem tveimur dögum og einni nótt var eitt. Við fengum að leggja bílnum í bakgarðinum hjá einum hressum ástrala og nota sturtuna og klósettið hja honum... alltaf gaman að hitta local people sem er hjálpsamt og skemtilegt..

Partur 2:
Í Brisbane lögðum við bílnum nálægt miðbænum við frekar busy götu og röltum um bæinn. Tveim tímum seinna ætluðum við að sækja okkur mat í picnic og komumst þá að því að það hafði verið brotist inní bílinn hjá okkur. Að sjálfsögðu var það eina sem tekið var úr bílnum bakpokinn MINN þar sem allir kaplarnir fyrir harða diskinn minn voru, kaplarnir fyrir nýju myndavélina sem ég keypti deginum áður ásamt hleðslutæki fyrir símann og mp3 spilarann minn voru. Auk ökuskírteinisins og eithvað af fötum. Það jákvæða er að þar voru einnig óhreina tauið mitt, svo ég þarf ekki að hugsa um að þrífa það:) auk þess er einni töskunni minna að bera!!..
Þið gætuð þó ekki trúað hvað það hefur verið erfitt að redda nýjum köplum fyri diskinn og myndavélina... og ég er ekki enþá búinn að redda nýjum hleðslutækjum... VESEN.... En hey lífið er gott og ég nenni ekki að pæla of mikið í þessu.

Eftir allt vesenið í Brisbane keyrðum við sem sagt til Glass house mountains og eiddum nóttinni við rætur mt. Beerwah sem við svo klifum núna í morgun. 1,5 tima klifur og vorum komin niður kl. 0830..... Núna er ég staddur í Noosa national park, þar sem maður sleikir sólina á klettunum í 30gráðu hita og nýtur lífsins.. Stefnan í dag er sett á Rainbow beach og um helgina er það Fraser Iseland!!! getur varla klikkað..
Kveð í bili héðan úr sólinni og ævintýrunum

16 comments:

Ingolfur said...

Gleymdi að segja frá því að það er komið eithvað af myndum... linkurinn er hérna til hægri á síðunni.

Anonymous said...

Svona á þetta að vera góða skemmtun og farðu vel með þig!

Anonymous said...

Sjitttt hvað það er örugglega gaman hjá ykkur. Þetta er ekkert smá spennandi ferð. Frábært með myndirnar , fer beint í að skoða þær.
Hey já, mig vanta netfangið þitt.
Leiðinlegt með bakpokann en frábært hjá þér að losna svona við óhreina þvottinn :) góður.
Haltu áfram að lifa lífinu.
Kveðja Hafdís.

Anonymous said...

Fottar Myndir ::--))

Anonymous said...

Fúllt að vera rændur, en samt hluti af ævintýrinu. Gaman að sjá myndir...og haltu áfram að skemmta þér vel.
Kv,
Dísa

Anonymous said...

Flottur!
Fylgist með þér
Góða skemmtun.

Anonymous said...

Þetta fylgir svona ævintýrum, flottar myndir

Unknown said...

haha óheppinn... ég græt innra með mér

Anonymous said...

Tetta er nu ekta tu,lata stela bakpokanum, tvi hann var fullur af ohreinum tvotti, oruglega odyrara ad fa hann tvegin einhversstadar:( en vona ad tu og veit ad tu skemmtir ter alveg konunglega an okkar allra her sem fyrlgumst grant med ter, goda ferd afram kv ur roki og rigningu Dagga

Anonymous said...

ég get bara sagt eitt orð MAGNAÐ!!!!
Vona bara að þú hafir verið búinn að raða skítugu nærunum efst, ég geri það alltaf svo Tollararnir þurfi að þefa af þeim þegar þeir gramsa í minni
KV. EINAR

Anonymous said...

Uss uss uss... þetta hefur verið ansi súrt að kyngja, eeen... þú ert greinilega í góðum gír þrátt fyrir þetta og það er það sem skiptir máli...
Svo er bara endalaus líkamsrækt í gangi hjá þér, þú verður bara stæltur og brúnn í blíðunni í Ástralíu.
Góða skemmtun áfram.
Kv. Begga

Anonymous said...

Varð bara að kvitta aftur eftir að hafa skoðað myndirnar. Greinilega hægt að finna eitthvað til að skoða þarna ;o)
Hilsen, Begga

Anonymous said...

Þetta líkar mér, ekkert spá í þennan bakpoka, bara dauðir hlutir, en samt auðvitað vesen og leiðinlegt. Frábært að fylgjast með ferðum þínum. Sjáum að þú fílar þetta í tætlur sem er geggjað. Hafðu það sem best kæri vinur.
Bestu kveðjur frá Skaganum
Karen og Ásgeir

Anonymous said...

Var að skoða myndirnar og þetta er tær snilld hjá þér.

Gauti said...

jæja . . meira blogg !

Gauti said...

jæja nú er það spurningin . . er hann ennþá lifandi eða fékk hann kengúru í hausinn eða var hann étinn af krókódíl eða er hann bara búinn að gleyma okkur