Hættið að leita í dánarfregnunum, þurkið tárin úr augunum og mætið aftur til vinnu.. ég er enþá á lífi!
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér hérna í Melbourne og nágrenni að ég hef ekki haft nokkurn tíma til að skrifa nokkurn skapaðan hlut. Í dag ætla ég semsagt að fylla inní eyðurnar og segja frá því hvurn andskotann ég er að gera af mér þessa dagana..
Fyrstu dögunum hérna eyddi ég í að skoða borgina í björtu sem í dimmu (ef hægt er að orða það þannig) og verður að segjast að borgin er fáránlega flott og hefur suddalega mikið uppá að bjóða. það eru byggingar fyrir allar mögulegar sportgreinar, það er góð aðstaða fyrir hjólandi vegfarendur á vegunum auk þess sem næturlífið er frábært og fullt af tónlistarviðburðum og einhverskonar festivals allt árið í kring. Um daginn náði ég mér í miða á söngleikinn "The War of the Worlds" sem er í alla staði brilliant. Þetta er einn besti söngleikur allra tíma og ég sat þarna ásamt 20.000 öðrum aðdáendum með gæsahúð allan tímann... BRILLIANT!
Auk þess sem borgin sjálf inniheldur að þá eru skíðafjöllin nálægt, Tasmania er bara klukkutíma í burtu (by air) og það eru offroad hjóla og hiking tracks allt í kring (ég elska þessa borg).
For um daginn niður til Torquay sem er lítill surf bær fyrir sunnan melb. Það er náttúrulega ekki hægt að fara frá Ástralíu án þess að prófa að surfa. Annar einstaklingur frá rafting ferðinni i Cairns býr einmitt þar í bæ og hún bauð mér að koma í nokkra daga til að surfa. Sjórinn er fuckin ískaldur (ekki isand ískaldur en þó nokkuð kaldur) og ég hafði ekki blautgalla eins og ALLIR hinir en lét það ekki stoppa mig og hoppaði útí sjóinn. Fuck hvað það var kalt og eftir 20 mínútur voru lappirnar fyrir neðan hné dofnar.. En hey ég hef allavega prófað að surfa and I suck at it...
Ég prófaði annað nýtt sport um daginn, white water kajaking. Þó að ég hafi verið í sjókajak og vatnakajak áður að þá hef ég aldrei prófað þessa pinkulitlu kajaka og farið niður litla á með rapids og gott action í, og ég komst að því að þetta er sennilega eithvað það skemtilegasta sem ég hef prófað.. fuckin snilld.. brilliant..
Eins og ég nefndi um daginn fékk ég vinnu í nokkra daga hérna, smá byggingarvinna, vinna fyrir gistingu og þessháttar. Það sem er þó mikilvægara er að ég var líka að vinna fyrir miða á The motor grand prix sem er í fáum orðum mótorhjóla útgáfan af formula1. Ég fer niðureftir í dag fimtudag og kem ekki aftur fyr en á mánudag þannig að þætta ætti að vera frekar öflugur viðburður..
Í öðrum óspurðum fréttum að þá er það að segja frá að á þriðjudag 16th of oct. flýg ég til New Zealand, þannig að Ástralíu ferðin er senn á enda, aðeins nokkrir dagar eftir í því landi. Ég veit ekki alveg hvað ég er að farað gera í NZ en ég verð það í fjórar vikur eða til 20nov. Á þeim tímapunkti ætti ferðin að vera ca. hálfnuð (vonadi) miðað við að ég nái að eyða ekki of miklum peningum í einhver jaðarsport í NZ. Ég flýg nefnilega til Chile frá NZ og ætla að eyða nokkrum mánuðum í að kikja á suður ameriku, það ætti að vera auðveldara að lifa á minni pening (þegar ég segi minni að þá meina ég færri peningum, ekki bókstaflega smærri pening) þar, þar sem allt er mun ódýrara í þeirri heimsálfu.
Það er kominn tími til að koma sér af stað á the grand Prix... næsti póstur verður af öllum líkindum frá NZ þannig að þangað til þá.. Njótið lífsins..
Wednesday, 10 October 2007
Subscribe to:
Posts (Atom)