Já kæru landar, þá er komið að því.. þótt ótrulegt megi virðast að þá er ég kominn með vinnu!! Kanski ekki alveg þar sem maður hefði helst viljað, landafræðilega séð, en vinna engu að síður og virkilega spennandi vinna í þokkabót. Ég er semsagt á leiðinni til Sønderborgar aftur og þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar að þá held ég það verði bara ágætt að koma aftur:) Ég byrja semsagt seinnipart september, þannig að það er rétt að farað lesa bækurnar aftur og ryfja upp hvað maður var aftur að læra þarna í skólanum...
Allavega, nóg um mig. Vona að allir hafi það virkilega gott! og ég sé ykkur fljótlega í borginni litlu..
Sunday, 31 August 2008
Thursday, 7 August 2008
Jæja, þá er ég kominn aftur til London eftir USA ferðina. Hef ekki komið þangað áður svo mér fannst helvíti gaman að koma þangað og sjá af hverju heiminum er stjórnað í dag. Ég verð að gefa þeim það að þeir hafa sennilega bestu og fljótlegustu flugvelli heimsins og ekki tók ég eftir allri þessari öriggisgæslu sem svo mikið er alltaf talað um. Ég var meiraðsegja fljótari í gegnum öriggisgæsluna og passport kontrollið en bandarísku ríkisborgararnir.. Það er líka snilld hvað allt er ódýrt þarna, ég verslaði mér einhvern slatta af fötum og eitt stikki fartölvu svona í tilefni dagsins.
Núna er ég þó semsagt kominn aftur til London, í vesenið og eilífu leitina að atvinnu...
Núna er ég þó semsagt kominn aftur til London, í vesenið og eilífu leitina að atvinnu...
Subscribe to:
Posts (Atom)