Ætli það sé ekki kominn tími á nýtt blogg.. ekki að það virðist vera margir sem lesi þessa vitleysu hjá manni...
Perú var alls ekki slæm, get ekki sagt annað en að mér hafi líkað mun betur við Perú en nokkurntímann Brasilíu. Perú virðist vera mun fátækari og soldið föst í gamla tímanum, en á sama tíma að reyna eins og það getur að komast inní nútíðina. Það sem ég meina er að útá landi sér maður gamlar kellur í litríkum veffatnaði að selja vefnað á hverju götuhorni (ef kalla má götuhorn) og byggingarnar virkilega frumstæðar, í öðrum orðum alger "slum", en svo allt í einu, inní miðju slumminu sér maður byggingu með glæjýjar rúður eins og maður myndi búast við í evrópu.. nokkuð merkileg sjón.
Machupicchu var snilld!! Get ekki sagt annað en að þetta sé frekar impressive samansafn af steinum uppá fjalli in the middle of nowhere.. Það er eigilega lítið hægt að segja um það, þarf eigilega meira að sjá... en það er allavega hægt að krossa þetta af listanum..
Þessa stundina erum við bræður í Bogóta (Colombíu) í góðu yfirlæti drekkandi expresso kaffi eins og okkur væri borgað fyrir það. Ætli maður hendi ekki nokkrum baunabokum í pokann áður en maður yfirgefur svæðið. Bogóta er nokkuð "kúl" bær en verður þó að viðurkennast að þetta er eini bærinn sem maður væri til í að hafa augu í hnakkanum, það er fullt af dodgy fólki hérna og svosem nóg af árásum og ránum hafa verið hérna undanfarið, ekki að við höfum séð nokkuð af því ennþá:(
Laugardagur til lukku, eða svo er sagt.. Næsta laugardag er ferðinni svo haldið til Kúbu, það verður reyndar að viðurkennast að það er hálffúlt að Castro hafi sagt af sér 4 dögum áður en maður kemst þangað.. helvítis helvíti.. en hey hann gæti alltaf dáið meðan maður er þarna og jafnvel komist í útförina (það má alltaf vona).
Hvað um það, það fer að líða að lokunum af þessari vitleysu hjá manni.. köllum það mánuð eða tvo.
Ef einhver les þessa vitleysu hjá manni að þá er aldrei að vita nema maður hendi inn eins og einu eða tveimur bloggum á Kúbu. Þar til næst, svona ef við gerum ráð fyrir að lifa Colombiu af...
litli og stóri bros
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Það var loksins að fann út hvernig ætti að commenta hérna. Búið að breyta þessu drasli. Vonandi skemmtið þið ykkur vel þarna í Columbíu og verðið ekki rændir. Ég held að það lesi fleiri þetta blogg hjá ykkur enn þið haldið. Það er reyndar þannig með mína síðu. Verið duglegri að skrifa.
Kv
Vilborg
Sælir bræður
Já farið nú varlega þarna í Columbíu og skemmtið ykkur svo enn betur í Kúbu. Megið ekki sleppa því að dansa þar, algjört skilyrði. Á ekki svo að kíkja við á Klakanum eftir 1-2 mánuði? Láttu okkur vita því þá verða D og S flutt og þá höldum við gleði með genginu góða.
Bestu kveðjur,
Karen
Hrikalega er gaman að fá að fylgjast með þessu ævintýri ykkar. Haldið endilega áfram að láta vita af ykkur og ykkar skemmtilegu ferðum.
Kv. Begga
Post a Comment