Saturday, 17 November 2007

...Það veit ég ekki

þurkið tárin úr augunum og hættið að leita í dánarfregnunum, ég er á lífi...
New Zealand er búið að vera frekar athyglisverður áfangastaður... Það er hægt að segja að NZ sé eins og Ísland bara allt öðruvísi. Það sem ég meina er að það eru eldfjöll, jöklar, fjöll, lækir, fossar og þessháttar nema hvað það lítur allt öðruvísi út. Með öðrum orðum: það eru tré hérna!! Ýminda mér að Ísland hafi verið svona fyrir einhverjum hundruðum árum síðan, þegar víkingarnir voru á vappinu. Anywho, það er svosem ekkert svona nýtt að segja frá svoleiðis. Mig er farið að hlakka til að skreppa til Chile (20nov). UUU by the way ég prófaði fallhlífastökk um daginn, ekki leiðinlegt það...
Það sem er annars í öðrum fréttum að segja er að í dag hef ég verið á ferðinni í 7 mánuði, þannig að það hlítur að farað síga á seinni helminginn af þessari vitleysu. Annars er þetta nú mun meiri vinna en fólk myndi halda... drekka, hitta fólk, skoða nýja hluti, nýr staður á hverri nótt ooooo hvað lífið er nú erfitt..;)
Later fólk, ég skrifa eithvað áhugavert næst

3 uppáhalds pickuplínur fyrir kvennkynið að nota:

1) hún; Áttu kærustu?
hann; nei... þú?
hún; já... en við erum í opnu sambandi..
2) "...Ég var að hætta með kærastanum mínum... hökt,hökt,hökt..."
3) "...þú ættir að vera módel..."

Datt bara í hug að deila þessu með ykkur!!

1 comment:

Anonymous said...

LOKSINS lætur þú heyra í þér. Það eru sumir að fara á taugum hér. Nefnum engin nöfn. Enn gaman að heyra loksins í þér og vonandi skemmtir þú þér vel í Chile. Láttu ekki eins langt líða á milli næst

Kv
Vilborg