Einn dagur eftir i spænsku kenslu og svo yfirgef ég spænsku mælandi landið... Eftir 4ja daga kenslu er eg allavega farinn að geta pantað mat á veitingastað, spurt til vega, keypt lestar/rútu miða, sagt hallo, eg bý, hvað gerirðu fyri living og svona small talk... ekki svo slæmt miðað við að fyrir 4dögum skildi eg ekki rass, ekki að eg se orðinn neit serstaklega godur, en get reddad mer..
nog um það, á laugardaginn flyg eg til Rio de Janiero, Brasil (þeir tala by the way portugolsku, svo ekki nota eg spænskuna mikið þar) og ætla eg ad eyda nokkrum dögum þar. Satt best að segja veit eg ekki alveg hvad eg er að gera þar og þaðan, þ.e. hvert eg fer eftir brasil.. en við finnum útur því seinna, nennum ekki að hafa áhyggjur af því of mikið.
Lífið leikur við mig allaveg þessa dagana, ég er búinn að kynnast klassa fólki hérna og er að skemta mér konunglega. Ekki svona classic skemta mér, as in drekka og djamma (þó það sé eithvað af því), heldur líka bara njóta lífsins og virkilega reyna að kynnast fólki frá öðrum þjóðernum. Mér finnst gaman að sjá hvernig mismunandi þjóðerni koma saman með nokkurskonar svipaðar skoðanir á lífinu, og mjög svo svipaðar ástæður fyrir tilgangi ferðalagsins. Mér finnst ég vera að komast að niiðurstöðu, eða kanski ekki niðurstöðu heldur frekar að komast í sátt við hvað ég vil/ætla að gera í framtíðinni. Ekki þar með sagt að ég viti nákvæmlega hvar ég vil vera, en allavega hvað ég vil gera... það er nokkuð notaleg tilfinning to be honest..
Nóg um mig.. Endilega verið kát og lifandi fólk.. lífið er allt of stutt og asnalegt til að eyða því í einhvad vesen sem leiðir til vesældar. embrace life
Behave
Ingo
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Það er nú gott að lífið leikur við þig Ingólfur minn, og gott að vita að þú ert að verða stór ( sko búin að ákveða hvad þú vilt gera i famtíðinni) það finnst mér sko stórt skref, ég get ekki enn ákveðið mig hehe. EN kæri vinur hafðu það gott áfram saknaðarkveðjur Dagga
Það er frábært að lífið leiki við þig Ingólfur minn. Þú átt það sannarlega skilið....eins og reyndar við öll ;)
Það verður gaman að fá einhverntíman að heyra hvað það er sem þú ætlar að verða þegar þú verður stór og frábært að þú sért sáttur við þá niðurstöðu.....bull er þetta að verða hjá mér...
Hlakka samt mest til að hitta þig svona live, hvenar sem það nú verður.
Hafðu það hriiiikalega gott áfram og skemmtu þér enn betur ;)
Knús Hafdís.
Ingólfur minn er ekki lífið yndislegt, hvar sem við erum? Hér þar alls staðar...
Kæmpe knÚs Stefanía
Post a Comment