Takk fyrir hamingju óskirnar.. ég hafði það svo sannarlega gott þennana sögufræga dag.. Naut útsýnisins í óbyggðum Tasmaníu í góðum félagsskap. þrátt fyrir að eingin veisla hafi verið haldin, einginn bjór drukkinn, eingin kaka étin eða nein veislumáltíð að þá var þetta sennilega einn af betri afmælisdögum sem ég hef haft.. eingin að trufla mann með símtölum og skyldu "til hamingju óskum".. bara ró og næði.. nóg um það..
Nett afmæliskveðja fer hérna út til systur minnar.. Til hamingju með daginn!!.. í gær..
Tasmania var frábær!! Eins og þið vitið að þá fór ég í nokkrar göngur á eyjunni og hefur það einhvernvegin endurnært mig. Það sem ég meina er að stundum þarf maður bara að kúpla sig útúr öllu og frá öllum og hreinsa hugann of öllu og öllum.. you know what I mean.. Á Maria island sem er lítil eyja af austurströnd Tasmaniu eyddi ég 4 dögum í æðislega fallegri náttúru og frábæru veðri og fyrstu 2 dagana sá ég ekki aðra lifandi (né dauða) manneskju. Ég var einn í paradís að rölta um fjöll og fyrnindi og það var æðislegt á meðan það varði.. en það var svosem frábært að komast aftur í siðmenninguna eftir þennan tíma.
Eins og titillinn kanski gefur upp að þá er ég annars kominn til Melbourne. Einn af þeim sem voru með mér í rafting ferðinni í Cairns á North johnstone ánni, sagði mér að láta sig vita þegar ég kæmi til Melbourne og ég gæti fengið gistingu hjá honum. Eftir að hafa ritað til hans, sagði hann mig velkominn til að gista hjá honum og fjölskyldu eins lengi og ég vildi... Hafa þau planlagt stífa dagskrá fyrir mig hérna í borginni, kynna mig fyrir öllum vinum og vilja allt fyrir mig gera og eru í alla staði frábær. Manni líður eins og kóngi og hefur hálfpartinn samviskubit yfir allri fyrirhöfninni.. Hefur einnig verið nefnt að ef ég seinka fluginu mínu til New Zealand (30sept) um nokkrar vikur, að þá vill hann fá mig í vinnu í nokkra daga í fyrirtækinu sínu... hef ekki enþá ákveðið hvað ég geri, en þetta er virkilega freistandi.
Annars er ég nú bara að eyða tímanum í að rölta um Melb. og skoða götur, söfn, byggingar, tónlist, bari og almenna menningu í borginni og verð ég að segja að so far líst mér vel á staðinn..
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Geggjað að þú skulir hafa notið þín svona vel á afmælisdaginn og ekki er síðra að fá að búa hjá svona almennilegu fólki.
En það stendur einn hérna fyrir aftan mig sem er frekar forvitinn um þetta fyrirtæki sem verið er að bjóða þér vinnu í ;o) og gettu nú hver það er, hehehe...
En hafðu það gott áfram í útlandinu
Kv. Begga (& Stebbi)
Þakka þér fyrir afmæliskveðjuna. Það er gott að heyra í þér loksins og vita að þú ert heill á húfi enn það er eitt sem vantar á þessa síður hjá og ég er búin að benda á áður enn það vantar fleiri myndir, þú varst eitthvern tíman búinn að lofa að setja þær inn enn ekkert gerist. Mæli með að þú farir að gera eitthvað í því núna víst þú ert ekki að gera neitt af viti.
kv
Vilborg
Það er nú alltaf fínt að fá tækifæri á að velja og hafna. Vandamálið er oft meira að velja rétt!
Þú ert greinilega alveg að fíla þig þarna í ræmur og það er bara frábært.
Bestu kveðjur frá okkur,
Hafdís
Frábært.
gaman að heyra frá þér, vonandi ertu ekki búinn að finna þig í Melbourne og festa þar rætur... þá þarf maður að byrja að safna til að koma í heimsókn...knús Stefanía
Seinar heillaóskir með afmælið og afganginn af ferðinni. Nú þegar þú ert komin til Melbourn, langar mig að mynna þig á Ernu frænku.
Kveðjur frá Akureyri
Anna og Hafsteinn
Stefán, þetta er nú ekki neitt sérstaklega áhugavert jobb, bara venjuleg byggingarvinna.. en þetta er allavega eiðslupeningur fyrir þann tíma sem ég er að seinka fluginu..
Post a Comment