Það mætti halda að ég væri kominn til Íslands á heitum vetrardegi. 10gráður og satt best að segja skítkalt. Munurinn er þó að hér er vægast sagt glæsilegt landslag og ég hef virkilega góða tilfinningu fyrir eyjunni... skírist þegar þið sjáið myndirnar (þegar þær koma inn..).
Hobart er annars lítill (120.000) og myndarlegur bær staðsettur í miðri hlíð við lítinn fjörð. Munurinn við ísland er sú staðreynd að það eru full af stórum trjám allstaðar. Á fyrsta degi horfðum við uppá fjöldaslagsmál eiturlyfjafíkla og handtökur í kjölfarið... alltaf gaman að sjá smá action í gangi.
Ferðalagið frá Perth gekk annars nokkuð vel. 3ja tíma flug frá Perth til Melbourne, í Mel eyddi ég svo nóttinni (11tímum) á flugvellinum, sofandi á trébekk við tjékkinn borðin. Í heildina litið náði ég kanski að dorma i ca klukkutima.. Klukkutíma flug frá mel til tas.. og hvað get ég sagt.. stunning views.. hlakka til að sjá meira af eyjunni.
later folks
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Trébekkir á flugvöllum ættu að hafa mjúkt yfirborð ;)
Hvað ert þú að taka inn Ingólfur? "Munurinn er þó að hér er vægast sagt glæsilegt landslag"
Á Íslandi ER GLÆSILEGT landslag. Hvenar varst þú eiginlega síðast heima??
Hafðu það sem allra best.
Knús Hafdís
Post a Comment