Friday, 13 July 2007

...back to the living... I think...

Jæja fólk, ég sé að fólk er farið að biðja um og nánast heimta nýtt blogg þannig að núna mun ég taka frá smá tíma frá annars fullbókaða tíma mínum af drykkju, gleði, peningaeyðslu og annarri vitleysu.. það sem maður gerir ekki fyrir vini sína;)

Það er svosem ekki neytt endalaust mikið að segja frá síðasta bloggi annað en að ég er enþá í Cairns. Þessi bær hefur einhver lokkandi áhrif á mann og af einhverjum ástæðum hef ég ekki fengið mig til að virkilega leita að fari burt þ.e. fyr en núna. Ég vil ekki segja að ég hafi fengið nóg af staðnum því þetta er æðislegur partybær, þetta er meira spurning um að bjarga sálu sinni frá of stórum skamti af freistingum og gamani. Flestir dagarnir hérna renna saman í 1´tt; Sunnudagur, þriðjudagur, laugardagur... aðeins nöfn... það er ekki nokkur munur á þessum dögum eða hinum dögunum í þessum bæ og ganga flestir útá það sama...

Ég hef þó reyndar gert eitt sem vert er að segja frá; 4 daga White water river rafting trip. Þessi ferð var nokkuð mögnuð og verður gefinn út DVD at later point.. Í ferðinni voru upphaflega 7 + 3 fararstjórar og 1 myndatökumaður í kajak. Í fáum orðum hoppuðum við uppí þyrlu sem flaug okkur og öllu draslinu okkar inn dalinn, og má ég segja að það er fátt magnaðara en að fljúga inn skógi vaxinn dalinn, meðfram ánni og þurfa svo að hoppa útúr þyrlunni útá stóran stein í ánni... Magnað... Anywho... Ferðin byrjar á því að ein kellan dettur og brýtur á sér höndina og þarf þessvegna að kalla á þyrluna til að sækja hana.
Eftir að hafa pumpað upp bátana og draslinu komin fyrir er haldið niður ána. Það tók okkur megnið af fjórum dögum að komast niður ánna. Nóttunum var eytt camping stile á bökkum ánnar... Frábært útsýni, skemtilegt fólk, góður tími... vantaði bara að verða hræddur um lífið...

Þessa dagana er ég annars að leita að fari frá Cairns og skiftir það kanski ekki öllu hvert ferðinni er haldið, bara burt, bara sjá eithvað nýtt, upplifa eithvað meira... I´ll keep u posted þegar ég legg af stað...

Svona in closing vildi ég svara honum Gauta og hans trausta stuðningshópi sem komu með nokkrar spurningar undir comments á síðasta pósti... Tekið eftir röð:
Íslenska mjóskin er betri en sú Ástralska, þrátt fyrir að hún sé alls ekki svo slæm. Ég myni kanski líkja henni við dönsku mjólkina. Það er ekkert sem jafnast á við lambakjötið okkar og er hið Ástralska (án þess að hafa of mörg orð um það) nánast óætt.

Hvað varðar drykkjuvenjurnar hérna, að þá er það alveg augljóst að við stöndum á haus til að eiga einhvern möguleika á að koma nokkrum vökva niður...

Ég hef ekki enþá rekist á an attractive kangaroo, en fullt af dead splattered ones... telur það??

Later fólk og takk fyrir öll commentin
P.s. ... Point taken...

8 comments:

Anonymous said...

Auðvitað bloggar maður smá fyrir vini sína og segir frá sínum spennandi ævintýrum ;o)
Gott að heyra af þér í góðum gír. Við erum hérna í rigningarsumrinu mikla í DK og bíðum bara og vonumst eftir að fá smá sól og sumaryl.
En góða ferð áfram!!!
Kv. Begga

Anonymous said...

Heyri það á þér Ingólfur minn að þér leiðist smá :( eða þannig, vá ekkert smá fjör hjá þér njóttu þess bara áfram og hafðu það sem best sólarknus Dagga

Anonymous said...

Alltaf jafn spennandi þegar þú lætur heyra í þér og maður les af miklum áhuga og spennu, finnst eins og maður fari inn í þessar lýsingar og er hálfpartinn með í þessu. Ég var t.d. algerlega með í huganum þarna í þyrlunni, sá þetta alveg fyrir mér en sú sýn var ábyggilega langt frá þinni upplifun. Svo sat ég líka á bakkanum og tjaldið fyrir aftan, fór reyndar aðeins að hugsa um slöngur og hættuleg dýr en það náði ekkert lengra, víst þú varst ekkert hræddur. Sjitt þetta er geðveikt hjá þér. Já komdu þér nú bara úr þessu sukki ;) líst vel á það, nýta tímann og upplifa eitthvað nýtt...þú ert frábær.
Kveðja úr sólinni endalausu á Skaganum.

Anonymous said...

Djö held ég að það hafi verið gaman í þessu river rafting dæmi. Hefði sko verið til í að vera með í því.
Ég segi eins og Karen, farðu nú að koma þér af stað að upplifa eitthvað meira spennandi en sukk og svínarí :)
Hlakka til að heyra meira að ég tali nú ekki um að fara að sjá myndir ;)
Kveðja Hafdís

Anonymous said...

Vááá.... Ég held að þessi river rafting ferð hafi ekki verið neitt svakalega leiðinleg. Vona að maður fái einhverntíman að sjá dvd-inn. Haltu áfram að gera svona spennandi hluti...þú getur sukkað allstaðar ik?
Kveðja,
Dísa

Anonymous said...

Góður punktur Dísa. ;)

Anonymous said...

ég meina ég var farin að halda að þú værir allur Ingolfur minn en fyrst þú ert nú lifandi og í fullu fjöri þá er ég með smá fjör í viðbót fyrir þig...þú hefur verið klukkaður og þarft að skrifa 8 atriði um sjálfaN ÞIG SEM VIÐ VITUM EKKI um svo klukkar þú aðra átta og heldur áfram að upplifa lífsins ævintýri þarna hinumegin, Knús Stefanía

Anonymous said...

hva á ekki að fara að blogga meira, meiri fréttir :) knús Dagga