Monday, 19 March 2007

Tóm stemming

Kominn á fæturna aftur... síðasta vika var svona líka glimrandi skemtileg!! Ákvað að gera heiðarlega tilraun til að bæta á mig ellefta fingrinum, sem hljómaði at that time ekki sem svo vitlaus hugmynd. Þetta átti að framkvæmast með einum handheldnum slípirokki með stálskurðarblaði. Markmiðið var semsagt að kljúfa þumalfingur hægri handar í tvennt. Þetta gekk svosem ágætlega eftir... svona þar til kjöt og aðrir hlutir voru farnir að tætast um vinnuplássið. Gaurinn sem sér um að halda svæðinu hreinu var ekkert voðalega sáttur við umganginn á mér... Fyrir rest gafst ég upp á þessum plönum og lét teipa puttann saman aftur, ætti að taka vænan tíma að gróa, en eins og maðurinn sagði "þetta snýst ekki um að vera bestur í öllu, bara að vera með"..

Frídegi vikunnar (sunnudagur) ákvað ég svo að eiða í að æla uppúr mér öllu því sem reyndi að komast niður... maður er orðinn svo feitur sjáiði til, að ég ákvað að bæta úr þessu. Hugsa að ég taki jafnvel næsta sunnudag í þetta líka... tóm stemming!!

Annars er stór helgi framundan... Bróðir minn verður 30ugur, og það er búið að leigja sumarbústað yfir helgina og ca.20 manns hafa boðað komu sína.. verður nett djamm!

later

7 comments:

Gauti said...

já þú ert allur í framkvæmdunum

Anonymous said...

Já, greinilega alveg að fara með þig stemningin á Íslandi.
Annars er Stefán kominn með vinnu hjá JF, svo að ég svari nú spurningunni af síðunni minni.
Góða skemmtun í bústaðnum um helgina.
Hilsen, Begga

Anonymous said...

Enginn er góður í öllu en allir eru góðir í einhverju :)
Ældu bara eins og þig listir, það er greinilegt að þú sért alveg að finna þig í því. Sjálfri líst mér samt best á partýið/afmælið af þessari upptalningu á því sem þú ert að gera.

Anonymous said...

Ertu nokkuð að tapa þér í þessu bloggi, heilir þrír dagar á milli blogga.
Vilborg

Anonymous said...

Mmmmmm........ Girnilegar lýsingar... hehehe Sé þetta alveg fyrir mér... veit ekki hvort það sé kannski vegna allra splatter kvikmyndana sem maður hefur horft á gegnum tíðina...

Trolli said...

Hvað er þetta með þessa blessuðu sunnudagsveiki ?? er verið að setja eitthvað útí drykkina hjá þér ?
Ekki fara á sirkus

Ingolfur said...

sirkus bíður. sunnudagarnir eru nú bara notaðir af því þetta eru einu dagarnir sem ég hef efni á að vera veikur;)
Hver er annars Trolli?