Wednesday, 21 February 2007

Sannkallað búgí búgí

Þá er ég kominn í hóp allra hinna aumingjanna, þ.e.a.s. ég er líka kominn með blogg... jubbbbbííí..

Það er þó ætlunin með þessu bloggi að leifa fólki aðeins að fylgjast með mér þegar ég fer á flakk... (Það eru jú svo margir búnir að biðja mig um að láta heyra í mér... ekki veit ég þó af hverju:) ) Í tilefni þess að þá get ég tilkynnt það að ég er loksins að yfirgefa Sønderborg. Í fyrstu er ég þó bara að fara til Íslands í eins og mánaðar vinnu, og kaffi til "ammanna" tveggja. Í Apríl mánuði eru svo meiri ferðalög planlögð en ég vil helst ekki tala of mikið af mér fyrr en allt er staðfest..
Út úr íbúðinni fer ég núna á föstudaginn. Eiði eins og einni nótt í Odense og einni í København áður en ég flýg til litla og afmarkaða Íslands, sem einnig kallast heimalandið.

Fyrirfram vill ég líka biðjast afsökunnar á öllum þeim málfræði og stafsetningarvillum sem munu sennilega vera mikill hluti af framtíðar innleggjum á síðuna. Endilega lítið á þessar villur sem sjarmerandi hluta af þeirri fjölskyldu stemmingu sem myndast við lesningu þessarar síðu. Ýmindið ykkur bara þegar börnin koma hlaupandi til ykkar og segja "mamma, pabbi.. meigum við fá nýbakaðar vöfflur og heitt kókó og lesa svo bloggið hans Ingólfs. Hann hefur alltaf eithvad skemmtilegt og á sama tíma fróðlegt að segja..." (eða eithvað í þessum stíl)
Þar fyrir utan að þá veit ég bara ekki betur...

Later í bili
live long and prosper
Ingólfur

8 comments:

Anonymous said...

Ingólfur sem þekktur er fyrir að vera anti-mainstream bognar undan álaginu sem mainstream-MTV kynslóðin er búin að leggja á herðar honum...classic Ingólfur...

Sævar

Anonymous said...

Tilhamingju með síðuna loksins er hægt að filgjast með þér. enn þetta er það seinasta sem mér datt í hug að þú mundir gera

kv
sista

Anonymous said...

Velkominn í hóp "hinna aumingjanna" Ingólfur. Mér finnst þétta nú frábært framtak svo að við getum fylgst með þér, einmitt þegar þú hefur hina spennandi "reisu" í apríl.
Eeeen... "loksins að yfirgefa Sønderborg" hmmm... er það eitthvað sem þú ert búinn að bíða eftir lengi???
Hilsen, Begga

Anonymous said...

Hvernig geturu leift þér að segja loksins!!! Has this time together not ment anything to you!!! Hehehehe... Gaman að geta fylgst með þér... Svona þegar þú ferð í burtu.... Búhúhúhú

Gauti said...

það eru tvö "n" og bara eitt "m" í stemning .. það eru tvö "t" í eitthvað . . myndarlegur er með "y" og svona skrifar maður ímyndun.
Gaman að sjá þig á blogginu annars ;)
Eins gott að þú verðir virkur að blogga því annars neyðist ég til að elta þig uppi og . . og . . drekka með þér bjór !

Anonymous said...

Frábært framtak hjá þér,átt ábyggilega eftir að fá bloggari ársins verðlaunin séu þá þá yfirhöfuð veitt. Sammála með stafsetningar sjarmann, er ekki eins viss með vöflurnar og kakóið.
Er svo fegin að hafa ekki misst af þér í morgun og náð að knúsa þig í klessu. Vil bara segja það á meðan ég er ennþá með tárin í augunum, borgin verður ekki söm án þín ;)
Sjáumst vonandi aftur í apríl.
Kveðja og góða ferð Hafdís

Anonymous said...

Það er enginn maður með mönnum nema halda úti ,,dagbók,,!én ég rétt vona að þú komir með eina grand handa bestu vinkonu þinni!!
Kv Stína P

Ingolfur said...

Sorry Sævar, ég viðurkenni að álagið fór með mig. Loksins að yfirgefa Sønderborg, já, ég er búinn að bíða eftir þessum degi ansi lengi... and no, this time has ment nothing.. NOTHING i said...

Stina ég klikkaði á flöskunni, sá þetta svo seint... en auðvitað átti ég náttúrulega bara að hafa uppgötvað svona hluti...